Haust fegurð í Ólafsfirði

IMG 9775

Það er nú nokkuð liðið síðan ég var hér á heimasíðu minn, þá var ég nú að eltast nú við berin upp um öll fjöll og síðan komu göngur og réttir og sláturtíðin hjá hobbí bændum hér í Ólafsfirði þeir eru nú að verða nokkuð margir hér sem eiga fé og hafa bæði gagn og gaman að, og síðan kom smá hausthret svona rétt til að lofa okkur að vita að veturinn væri framundan, en nú er allur snjór farinn og aftur blíða framundan 10 -12 stiga hiti, "það passar aldrei eins og vant"  þá eru nú allir komnir á nagladekkin. Ég tók mig til í haustblíðunni og fór að taka til í garðinum mínum eða lóðinni minni eftir rokið um síðust helgi enda öll lauf fokin af trjánum og lóðin þakin laufi og runnarnir stútfullur af þessum fjanda . það voru nú bara 2. kerrur sem ég þurfti fara með af laufi og rusli það er ótrúlegt hvað þarf að fara með á haustin, held að það sé meira en á vorin eða kannski var ég bara að treina mér þessa vinnu til þess að njóta veðurblíðunnar dag, enda tala myndirnar sínu máli, mátti til með að smella nokkrum myndum svona til augnayndis í firðinum fagra í lok dags, þar skartaði himininn yfir Garðshyrnunni og Skeggabrekkudalnum og það var eins og Garðshyrnan væri farin að gjósa á tímabili þvílík fegurð. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Dásamlega fallegtVeistu um einhvern sem gæti selt mér lambakjöt ? 4-5 skrokka... sá sem hefur í nokkur ár séð mér fyrir kjöti er líklega dauður... eða sko hann svarar ekki í símann núna í margar vikurKnús á þig og bústýruna þína frá okkur báðum

Jónína Dúadóttir, 12.10.2009 kl. 21:09

2 Smámynd: Jón Hans

Komið þið sæl.Hjú hvað? hefur kreppan stútað honum hehe, læt ykkur vita ef ég veit um einhver sem er að selja kjöt. kv frá bústýrunni.

Jón Hans, 12.10.2009 kl. 21:19

3 Smámynd: Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir

Gaman að sjá blogg frá þér Nonni

Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir, 14.10.2009 kl. 00:09

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já kannski kreppan hafi náð honumÞakka þér fyrir vinur

Jónína Dúadóttir, 14.10.2009 kl. 05:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband