Ég er komin aftur
15.5.2008 | 17:50
Komið þið sæl öll sömu sæl. það er búið að vera vesen á tölvunni minni í vor sem endaði með að móðurborðið sprakk í loft upp og þá missti ég samband við umheiminn að mér fannst, alveg makalaust hvað maður er orðin háður þessu apparati ég var eins og vængbrotin Háfur og vissi nánast ekki neitt hvað ég átti af mér að gera, en það voru vorverkin í garðinum sem björguðu dauða tímanum hjá mér fyrir horn meðan talvan mín var á gjörgæslu í rúma viku, og er nú komin í lag ný og fersk og nú þarf ég að fara að læra allar aðgerðir upp á nýtt og sennilega að fara að rifja upp enskuna því allar aðgerðir eru nú á ensku en ég var með íslenskt forrit í þeirri gömlu. Nú er bara að sjá hvernig mér gengur að aðlagast nýja kerfinu í tölvunni. Mynd. Bjarkey Gunnarsdóttir tekin ofan af Múlakollu.
Athugasemdir
Ég vil byrja á að þakka ykkur fyrir komuna um daginn, það var æðislegt að þið skylduð koma og vonandi komið þið aftur, sem fyrst og sem oftastTil hamingju með tölvuna, einu sinni prófuðum við íslenska forritið í tölvuna okkar fyrir Jóa minn og ég skyldi ekki orð í því, alltaf verið sjálf með enskt. Ég var fljót að henda því og fara aftur í ilhýru enskunaGangi þér vel með vorverkin, þau verða að bíða hjá okkur, en eldhúsið gengur þess betur !
Sjáumst
Jónína Dúadóttir, 16.5.2008 kl. 06:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.