það vantar snjóinn???
16.12.2007 | 18:29
Hver skyldi nú trúa því að maður kæmist ekki á snjósleða hér í fjallabyggð Eystri um miðjan desember. Ég er búin að búa hér síðan 1950 og hef ekki séð svona tíðarfar og litin snjó hér á aðventunni. Enn nú er öldin önnur svo sannarlega. Hér áður fyrr þurfti maður stundum að moka börnin sín út svo þau kæmust í skólann slíkt og þvílíkt var fannfergið hér í desember.Það hefði stundum verið gott að eiga svona fák á þeim tíma. Enn í dag fer maður bara út í bílskúr núna og klæði sig upp sést á fákinn og lætur sig bara dreyma um að maður sé komin upp á fjöll að skoða náttúrunna og fjallasýnina í miklum snjó og góðu veðri klæða sig svo úr gallanum koma síðan inn og segja við bústýruna "fagurt var á fjöllum í dag elskan." Enn það er nú spurningin hvort þolinmæðin verði nú yfirsterkari og maður sætti sig bara við þetta ástand og fái sér bara fjórhjól í framtíðinni til að komast á fjöll, enn nú í dag þarf maður að fara með snjósleðanna á kerrum langar leiðir til að finna smá skafl að djöblast í , ég varla trúi þessu bara.
Athugasemdir
Þú tekur þig virkilega vel út á sleðanum mágur sæll ! Bestu kveðjur héðan úr Fjallakofanum til þín og bústýrunnar
Jónína Dúadóttir, 16.12.2007 kl. 22:01
Bara fá þér jeppa á 38 tommum, þá skiptir eingu hvort það er snjór eða ekki, ferð allt.
Siggi bróðir (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.