Réttir í Fjallabyggð Eystri
21.9.2014 | 12:12
Réttað var hér í Ólafsfirði Föstudaginn og Laugardaginn og er nú svo komið í dag að réttinn okkar er að verða alltof lítil, almeningur tekur ekki nema helming að því fé sem kemur að Fjalli þetta árið, svo nóg verður að keti hér í firðinum fagra í vetur. Mér finst nú ekki beint vera hægt að kalla þessa HOPPÍ BÆNDUR lengur þessu nafni heldur (FjárbændurFjallabyggðar) því ég held að það sé komið meyra fé hér í firðinum fagra enn var þegar ég var smá gutti í gamla daga og Pabbi var að stunda þennan búskap með sjómeskunni sinni. Bara gaman að sjá að það er mikkill hugur í mönnum og samtaka mátturinn mikill hjá þessum bændum að snúast í kríngum þessar kindur sínar og við bæjarbúar fáum að fylgjast með þessum uppgangi hér og Börn og barnabörnin okkar fái að njóta þess að taka þátt í þessum félagsskap.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.