Málverkasýning í Lysthúsi Ólafsfjarðar

img_1472.jpg

Svavar Guðni Gunnarsson var með málverkasýningu í listhúsi Ólafsfjarðar um jólin.  Svavar  bjó hér í Ólafsfirði fyrir rúmum 40 árum byggði hér bifreiðaverkstæði og rak hér í 9.ár Svavar fluttist til Akureyrar og gerðist kennari í verkmenntaskólanum þar í rafmagnsfræði. Svavar Gunnarsson hefur nú alltaf haft miklar tilfinningar til Ólafsfjarðar, hann hefur nú komið sér upp aðstöðu hér í Ólafsfirði fyrir listamenn til að vinna hér að list sinni og sýna hana. Það hefur nú alltaf blundað í Svavari að mála, veturinn 47-48 fór hann meðal annars í frístundarskóla og lærði þar grunnteikningar og eitthvað í mála. Svavar hefur nú verið að mála í frístundum sýnum og meðal annars sýnt verk sýn í Iðnskóla Akureyrar og Vín í Eyjafirði.Kannski verður nú meiri tími fyrir Svavar að sinna þessu áhugamáli sínu eftir að hann hætti að kenna.

Þess skal getið hér að listhús Svavar  stenndur á sömu lóð og Svavar byggði bifreiðarvertstæði sitt á, en mun glæsilegra  í dag.

Fleyri myndir í Albúmi:  Myndir


Bloggfærslur 2. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband