Málað í Grindavík
20.8.2007 | 17:15
Já ég skellti mér suður í síðustu viku og hjálpaði elsta syninum mínum að mála húsið hans. ekki vantaði blíðunna þarna í grindavík hef sjaldan lent í betra veðri 15 til 20 stiga hita dag eftir dag og því var ákveðið að nota tíman vel og mála eitt stykki hús og girðinguna kringum húsið. verkið gekk vel enda vorum við feðgarnir vel skipulagðir og vorum harðákveðnir að klára þetta verk áður en það færi að rigna næst. Síðan skelltum við okkur í Bláalónið til að ná af okkur málningarklessunum. Á Laugardaginn skruppum við feðgar upp í Landmannalaugar með Gumma og Sölva Ínumundar þeir ætluðu að hjóla Laugarveginn og niður í Þórsmörk sirka 11 tima ferð hjá hjólaköppunum, og það tókst hjá þeim enda veðrið frábært á þessari leið sögðu þeir og útsýnið alveg snilld. Þessari suðurferð hjá endaði svo með menningarnótt í Höfuðborginni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sólarupprás
8.8.2007 | 20:07
Hélt bara að kveiknað væri í bænum þegar ég vaknaði eldsnemma í morgun og leit út um eldhúsgluggann. þvílíkur roði á himni þegar sólin var að koma upp, ( varð að festa þetta á filmu) það var eins og íbúðin stæði í ljósum logum þegar ég leit í gluggana bakdyramegin þegar roðin speglaðist í gluggunum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Flýsapúsll
7.8.2007 | 21:14
Já það var nú hausverkur hjá mér um verslunarmannahelgina að púsla saman og flísaleggja stéttina hjá mér þegar stytti upp, og notaði ég tækifærið til að koma þessum flísum niður. Ekki veit ég hvort munstrið hjá mér sé neitt listaverk en er samt nokkuð ánægur með útkomuna , en ég var nú ekki alveg einn í ráðum með þetta, Bústýran og tengdasonur okkar voru nú líka inní myndinni á þessari hönnun, margar hugmyndir komu upp en miðað við nýtingu á flísunum ( 7. fermetrar Ljósar og 8.Fermetrar dökkar. það var lagerinn sem til var) kom þessi tilaga upp, og málið dautt .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fjallabyggðinn Mín
5.8.2007 | 18:10
Fékk mér göngutúr upp á golfvöll í dag í goðaveðrinu. það er ekki hægt að segja annað en fjörðurinn okkar hafi skartað sínu fegursta eftir úrhellisrigninguna í gær sem var afar kærkomin öllu gróðri í firðinum okkar þó fyrr hefði verið, varla komið dropi úr lofti í allt sumar. þegar ég leit yfir bæinn okkar og fjöllin í kring, kom upp í huga mínum gömul setning. ("Fögur er Hlíðin "Fer ekki rassgat) og það hef ég staðið við fram að þessu eða í 57 ár og er ekkert á förum, og er afar stoltur að hafa ekki haft löngun til að bregða búi og flytja úr firðinum, enda hef ég alltaf haldið því fram að það séu forréttindi að búa í svona fallegu bæ, laus við allt dressið hamagangin sem fylgir því að búa í Borg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Héðinsfjarðargöng
2.8.2007 | 20:46

Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)