Þjálfun snjóflóðaleitahunda

IMG 1641

Björgunarsveitirnar hafa verið að þjálfa snjóflóðaleitarhunda hér í ólafsfirði undafarna daga enda góð skylirði hér að æfa snjóflóðaleit og hafa björgunarsveitirnar nýtt sér þessar góðu þjálfunaraðstæður hér í góða veðrinu undafarna daga.


Flekasnjóflóð í Ólafsfirði

img_1623.jpg

Þunnt flekasnjóflóð rann niður fyrir norðan  bæinn Hlíð eða rétt norðan við mýraskálina þegar snjósleða voru þar á ferð í dag og hefur hávaðin sennilega frá þeim komið því á stað, flóðið er frekar breitt en þunnt. það er ekki gott að vera að þvælast mikið á snjósleðum við fjallsrætur hér í Ólafsfirði meðan snjórinn er að setjast og ættu því sleðamenn að doka við þangað til hættan er liðin hjá og leika sér bara á vatninu og fá þar smá útrás á meðan þessu varir.


Snjóar og Snjóar í Fjallarbyggð Eystri

IMG 1578

Já það er ekki hægt að segja annað  að við hér í Fjallabyggð  höfum fengið okkar skammt af snjónum þessa daganna og sennilega ekki allt búið ennþá miðað við spá næstu daga enn við erum nú sem betur fer vön svona uppákomum í veðrinu og tökum þessu með mestu æðruleysi þessa daganna. ( Fleyri myndir í albúmi Snjómyndir)


hver glöð er vor æska

IMG 1561

Krakkarnir á leikskólanum fannst bara gaman að komast út í snjóinn og fá sér salíbunu á þotunum sínum þó ferðin væri ekki löng niður, þá var bara að koma sér upp á hólinn aftur og renna sér niður. þessi sjón  blasir æði oft við manni út um eldhúsgluggað á morgnana þegar maður fær sér kaffisopan sinn og er að spá hvor sæmilegt veður sé úti til að fara á morgungönguna og maður getur nú ekki slaufað göngu þegar þessir krakkar geta verið úti þótt smá éljagangur sé af norðaustri.


Staða í Héðinsfjarðagöngum

verkframvinda_804746.jpg

Gröftur Héðinsfjarðarganga  frá Ólafsfirði gekk mjög vel í síðustu viku.

Sprengdir voru 65 m. og er heildarlengd gangna þeim megin frá 4.674.m samtals er búið að sprengja 10.209m eða 96,6 prósent af heildarlengd og eftir eru 361 m.


Útivistardagur í Fjallabyggð Eystri

IMG 1560

Já já ekki vantaði góða veðrið í dag hér í Fjallabyggð eystri, enda var tækifærið notað vel til útivistar í dag bæði fyrir göngufólk á skíði og sleðum upp um öll fjöll því veðrið gerist ekki betur hér norðan heiðar en dagurinn var í dag.  ég fór á mínum fjallabíl upp á Láheiði í dag til að njóta fjallasýninnar og sólarinnar  sem best og kom heim hress og kátur og kaffi brúnn að mér fannst (kell) í rjúkandi súkkulaði og vöflur hjá bústýrunni minni eftir þessa dásamlegu útivist hjá húsbóndanumí dag.   Já já já það er ekki spurning það eru forréttindi að búa á svona stöðum þegar svona dagar koma og þeir koma bara nokkuð oft að mínu mati.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband