Héðinsfjarðargöng

verkframvinda_775352.jpg

Vel hefur gengið að bora og sprengja eftir jólafrí í Héðinsfjarðargöngum ekkert vatn að stríða mönnum vonandi verður þetta greið leið sem eftir er og engar tafir þá ættur þeir að slá í gegn svona upp úr miðjum Mars næstkomandi.

Frá Héðinsfirði til Ólafsfjarðar voru sprengdir 45 m.og jafnframt unnið við bergstyrkingar.  Eitt neiðar útskot (Skápur) er á næstunni Ólafsfjarðarmegin og eitt útskot Héðinsfjarðarmegin eru eftir áður en í gegn verður slegið.

Frá Ólafsfirði til Héðinsfjarðar voru sprengdir 63 m. Nú eru aðeins rúmir 600 m. eftir Reiknað er með að fara upp á há bungu Héðinsfjarðarmegin og hætta þeim megin frá og svo klárað að slá í gegn Ólafsfjarðarmeginn vonandi stenst sú áætlun enda kreppan farin að klóra í þessar framkvæmdir og guð má vita hvenær þessu verki verði lokksins lokið.


Jólahretið kom, en bara of seint

img_1490.jpg

Loksins kom jólasnjórin sem ég var búin að bíða eftir öll jólin en bara of seint. mér finnst alltaf miklu jólalegra þegar hvítur snjór er yfir öllu þá fyrst njóta jólaljósin sín miklu betur og bjartara verður yfir bænum okkar. það verður allt miklu drungalega í svartasta skammdeginu þar sem mjöllin nýtur ekki við og ekki eins jólalegt að mér finnst þegar engin snjór er á jólum enda  gerist það mjög sjaldan hjá okkur sem búum hér  norður á Tröllaskaganum.  Ég var mátuleg búin að bjarga ljóla ljósunum inn í skúr þegar norðan hretið kom og er því vel sáttur við þetta hret okkar enda komin tími fyrir skíða og göngufólkið okkar að komast á skíði það verður bara að hugsa aðeins lengra en bara um sjálfan sig og lofa þeim sem öllu ræður eða náttúrunna að ráða hvernig þessi vetur verður og skella sér þá bara í sund ef allt fer á kaf í snjó, því engin skíði á ég til að taka fram og sennilega komin úr allri þjálfun að halda jafnvægi á þessum mjóu gönguskíðum í dag því allir eru nú með flottustu græjurnar og gömlu breiðu gönguskíðin (tunnustafirnir) sem maður kallaði og átti hér í gamla daga löngu horfnir og heyra bara sögunni til.       


"Svarthvítt í lit "Málverkasýning Freyju

img_1474.jpg

Ólafsfirðingurinn Freyja Dana Kristjánsdóttir var með málverkasýningu í lysthúsi í fjallabyggð í Ólafsfirði um helgina eða Laugardaginn 3.jan. og sunnudaginn 4.jan. Freyja hefur verið í myndlystarnámi meira og minna síðustu 10 árin og hefur meðal annars notið kennslu Damians Callan í Edinborg. Hann er þekktur í Bretlandi fyrir myndlist sína og hefur verið meistari hennar síðustu 6. árin. Auk þess hefur hún undafarin ár numið myndlyst við myndlistarháskóla í Edinborg (Edinborg College of Art) og í Aegean Centre for the Fine Art á grísku eyjunni Paros.  Þá hefur hún sótt þekkingu til Ástralíu, Bali og New Orelans.

Þetta eru verk sem gert er eftir svarhvítum ljósmyndum sem móðir mín Ásta Helgadóttir, tók árið 1956 hún var góður áhugaljósmyndari.

Flestar eru þær teknar á jörð foreldra föður míns, Kristján Hilmars Jónssonar. Freyja segir verkin því vera bernskumynningar. "Frá þeim tíma sem allt var bjart og fullkomið. Mig langaði að gera myndir frá mínu upphafi og eftir að hafa skoðað ljósmyndirnar varð þessi sýning til.  það er þrjátíu andlitsmyndir, sumt fólk þekki ég, annað ekki.  Þegar ég byrjaði að mála myndirnar tóku litirnir að birtast."  Sagði Freyja.

Þetta eru stórar og litfagrar myndir.  "þetta eru litir sem ég man sem barn. Sólargulur litur sem rennur í gegnum strigann  og minnir á hvað allt var saklaust og allir voru hamingjusamir með það sem þeir höfðu. Þegar kex og djús var með því besta sem krakkar fengu og voru glaðir með.

Þá stóð engin upp úr og engin heldur niður úr."   Freyja var eitt ár að vinna myndirnar og það kom ekki til greina að hætta við þótt bakslag hafi komið í efnahag Þjóðarinnar. Nú er meiri þörf fyrir svona sýningar.

(Fleyri myndir í Albúmi, Ýmsar myndir) Heimasíða Freyju http://freyjadana.is/


Málverkasýning í Lysthúsi Ólafsfjarðar

img_1472.jpg

Svavar Guðni Gunnarsson var með málverkasýningu í listhúsi Ólafsfjarðar um jólin.  Svavar  bjó hér í Ólafsfirði fyrir rúmum 40 árum byggði hér bifreiðaverkstæði og rak hér í 9.ár Svavar fluttist til Akureyrar og gerðist kennari í verkmenntaskólanum þar í rafmagnsfræði. Svavar Gunnarsson hefur nú alltaf haft miklar tilfinningar til Ólafsfjarðar, hann hefur nú komið sér upp aðstöðu hér í Ólafsfirði fyrir listamenn til að vinna hér að list sinni og sýna hana. Það hefur nú alltaf blundað í Svavari að mála, veturinn 47-48 fór hann meðal annars í frístundarskóla og lærði þar grunnteikningar og eitthvað í mála. Svavar hefur nú verið að mála í frístundum sýnum og meðal annars sýnt verk sýn í Iðnskóla Akureyrar og Vín í Eyjafirði.Kannski verður nú meiri tími fyrir Svavar að sinna þessu áhugamáli sínu eftir að hann hætti að kenna.

Þess skal getið hér að listhús Svavar  stenndur á sömu lóð og Svavar byggði bifreiðarvertstæði sitt á, en mun glæsilegra  í dag.

Fleyri myndir í Albúmi:  Myndir


GLEÐILEGT NÝTT ÁR

jol_2.jpg

Ég óska ykkur öllum Gleðilegt nýtt ár og þakka ykkur öllum fyrir innlit á bloggsíðunna mína á síðasta ári.

 

Jón Hans, með Glans

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband